Flötur
Samtök stærðfræðikennara
shadow shadow

Um Flöt

Flötur er samtök stærðfræðikennara á Íslandi. Þau voru stofnuð 3. mars 1993. Markmið Flatar eru m.a. að veita stuðning við þróunarstarf á sviði stærðfræðimenntunar, að efla menntun stærðfræðikennara, að skapa vettvang fyrir umræður um stærðfræðikennslu og að veita kennurum stuðning við að takast á við ný og breytt viðfangsefni og vinnubrögð.

Með þessum hætti vilja samtökin sameina íslenska stærðfræðikennara á öllum skólastigum í starfi, umræðum og skrifum um stærðfræðimenntun.
 

Flötur hefur staðið fyrir ýmsum viðburðum á undanförnum árum. Þar má nefna ráðstefnur og fundi, kennaranámskeið, fyrirlestra og ferðir á erlendar ráðstefnur auk útgáfu tímaritsins Flatarmála að ógleymdum Degi stærðfræðinnar sem haldinn hefur verið hátíðlegur í skólum undanfarin ár. Sú nýjung var tekin upp haustið 2002 að halda svokallaða námstefnu þar sem boðið hefur verið upp á fjölbreytta dagskrá, m.a. símenntunarnámskeið.

horizontal bar

Flötur © 2006 Upphafssíða

Vefumsjón