Lög félagsins
1. Félagið heitir Flötur samtök stærðfræðikennara.
2. Markmið félagsins er:
a) að efla stærðfræðinám og -kennslu í íslenskum skólum,
b) að stuðla að aukinni menntun stærðfræðikennara,
c) að vera vettvangur umræðna um markmið og áherslu í stærðfræðinámi og -kennslu
í samræmi við þróun þjóðfélags, tækni og greinarinnar,
d) að veita kennurum stuðning við að takast á við ný og breytt viðfangsefni og
vinnubrögð.
3. Félagið hyggst ná markmiðum sínum:
a) með samstarfi við menntastofnanir kennara og aðra þá sem halda uppi
fræðslustarfi fyrir kennara,
b) með því að efna til fræðslufunda, námskeiða og ráðstefna eitt sér eða í
samvinnu við aðra,
c) með því að efla samstarf íslenskra stærðfræðikennara á öllum skólastigum,
d) með því að leita tengsla við stærðfræðikennara og samtök þeirra erlendis,
e) með útgáfustarfsemi svo sem útgáfu tímaritsins Flatarmál.
4. Félagssvæðið er landið allt. Innan félagsins geta starfað hópar um tiltekin
viðfangsefni eða svæðisbundir hópar. Einnig getur stjórnin sett nefndir og
starfshópa til ýmissa starfa eftir þörfum.
5. Allir kennarar sem hafa áhuga á stærðfræðinámi og -kennslu geta orðið
félagsmenn. Einnig er stjórninni heimilt að taka aðra þá inn í félagið samkvæmt
stöðu sinni eða menntun hafa áhuga á viðfangsefnum félagsins.
6. Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri
og einn meðstjórnandi. Kjörnir skulu tveir varamenn í stjórn. Stjórnarmenn skulu
kjörnir á aðalfundi til eins árs í senn, nema formaður sem kosinn skal til
tveggja ára. Að öðru leyti skiptir stjórnin sjálf með sér verkum. Enginn má
gegna sama embætti í stjórn lengur en tvö kjörtímabil í senn. Á aðalfundi skulu
einnig kosnir tveir endurskoðendur. Sé þess óskað skulu kosningar vera
leynilegar.
7. Aðalfund skal halda að hausti og eigi síðar en 10. nóvember ár hvert.
Á dagskrá skal meðal annars vera:
a) skýrsla stjórnar og starfshópa
b) lagabreytingar
c) reikningar
d) kosning stjórnar og endurskoðenda
e) önnur mál
Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála.
8. Aðalfundur skal boðaður skriflega með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Lögum
verður aðeins breytt á aðalfundi. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans
boðað.
9. Aðra fundi skal stjórnin halda eftir þörfum og ef tíundi hluti félagsmanna
fer fram á það.
10. Tekjur félagsins eru árgjöld félagsmanna, styrkir og frjáls framlög. Árgjald
skal ákveðið á aðalfundi. Reikningsárið skal miðast við aðalfund.
 |