Flatarmál
Flötur gefur út tímaritið Flatarmál einu sinni til tvisvar á ári.

Flatarmál er málgagn félagsmanna Flatar.
Flatarmál er vettvangur fyrir fræðigreinar, viðtöl, reynslusögur kennara úr
skólastofunni og kynningar á viðfangsefnum og vinnubrögðum í stærðfræðinámi og
kennslu.
Ritnefnd leggur áherslu á að Flatarmál höfði til félagsmanna af öllum
skólastigum.
Það er mikilvægt að félagsmenn og aðrir áhugamenn um stærðfræðinám og
stærðfræðikennslu birti greinar og pistla í Flatarmálum.
laufeyeinars@korpuskoli.is
Ritnefnd skipa:
Laufey Einarsdóttir, ritstjóri
og kennari við Korpuskóla
Þórgunnur Óttarsdóttir,
kennari við Brekkubæjarskóla
Til
höfunda greina í Flatarmálum
Hverri grein skulu fylgja upplýsingar um nafn
höfundar, starfsheiti og stofnun sem hann vinnur hjá.
Höfundur er beðinn um að koma með tillögur að
aðalfyrirsögn, millifyrirsögnum og myndatextum.
Ljósmyndir, teikningar og línurit skulu helst ekki
sett inn í texta greinar, heldur vistuð í sér skrám. Í texta komi fram númer eða
nafn teikningar.
Ritnefnd tekur endanlega ákvörðun um birtingu greina.
Grein er skrifuð á ábyrgð höfundar.
Ekki er greitt fyrir greinaskrif í blaðið
Hvernig get ég fengið
Flatarmál?
 |