Flötur
Samtök stærðfræðikennara
shadow shadow

Dagur stærðfræðinnar

Fyrsta föstudag í febrúar

Markmið með degi stærðfræðinnar er tvíþætt. Að vekja nemendur og sem
flesta aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu, einnig að fá nemendur til að koma auga á möguleika stærðfræðinnar og sjái hana í víðara samhengi.

Dagur stærðfræðinnar er fyrsta föstudag í febrúar.

Árið 2009 ber Dag stærðfræðinnar upp föstudaginn 6. febrúar.

Dagur stærðfræðinnar 2009

Dagur stærðfræðinnar 2008

Dagur stærðfræðinnar 2007

Þemahefti

Allt til ársins 2005 voru gefin út sérstök þemahefti í tilefni dagsins. Þessi hefti má nálgast með því að senda tölvupóst til Flatar þar sem fram kemur:  Nafn þess sem pantar,  eintakafjöldi, ártal ritsins/ritanna (eða heiti), nafn greiðanda, kennitala greiðanda og heimilisfang.

Verð 1000 kr. stk.  Áður 1500kr.

Smellið á heiti heftis til að fá nánari upplýsingar.

Mynstur og algebra 2005

Stærðfræði í lífi og starfi 2004

Tími og rúm 2003

Stærðfræði og barnabókmenntir 2002

Heimaverkefni í stærðfræði 2001

Rúmfræði, verkefni og hugmyndir 2000


Verkefnin í þemaheftunum eru að jafnaði skipt eftir ákveðnum skólastigum fyrir 1.-4. bekk, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk grunnskóla. Heftin eru því aðgengileg fyrir bekkjarkennara. Sum verkefnanna eru þannig að kennarar ljósrita þau og leggja fyrir nemendur með þeim tilmælum sem finna má í heftunum og önnur verkefni krefjast meiri undirbúnings af hálfu kennaranna.

horizontal bar

Flötur © 2006 Upphafssíða

Vefumsjón